Rósmary
Nafn þetta er fengið af enska nafninu "Rosemary" sem sett er saman af jurtaheitinu "Rose" og nafninu "Mary" og hefur verið lagað að íslensku.
Ýr
Nafn þetta merkir bogi.
Váá mikið var að ég fæddist, foreldrar mínir voru búnir að bíða í 41 viku og 4 daga þegar ég loksins ákvað að nú væri timinn til að sýna sig og sjá aðra :-) Þegar ég kom í heiminn var ég 54 cm og 16 merkur (4000 gr) og með bláustu augu sem mamma hafði séð á ungabarni. Hárið var nú frekar furðulegt að margra mati því það var svart með ljósum strýpum, Auðvitað á ég svo bestu foeldra í himinum. Mamma mín heitir Elín María Þorvarðardóttir og pabbi minn Steinar Már Þórisson. Svo á ég Stóran Hálfbróðir, hann heitir Ingólfur Örvar er hann 11 ára og ein lítin bróður hann heitir Þórir Steinn er hann 3 ára og svo einn pínu lítinn bróður sem fæddist 31. maí 2006 hann heitir Viktor Þorvarður.
![]()
Þórir Steinn Litli bróðir minn.
![]()
ELSKU MAMMA OG PABBI
Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni
Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir
Ekki slá á hendurnar á mér þegar
Ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki
Horfðu á mig þegar ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta
Ég hef viðkvæmar tilfinningar
Ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök
Án þess að mér finnist ég vitlaus
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna
Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki það sem þú segir
Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég
Ekki fyrir eitthvað sem ég geri
Mamma er konan:
sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsa meira
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er svo vön að hugsa vél
um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með
út rétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast
með manni þegar gaman er að vera til.
MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI:.....
Pabbi er maðurinn...
Sem verður svo montinn þegar barnið hans
fæðist að það mætti halda að það hafi
ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga
að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn
skuli ekki geta sofið alla nóttina og
kúkað í klósett eins og annað fólk,
Samt veit hann allt!!
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd
þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi!!!
"Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.Barnið snýr sér að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hann bara ,,mömmu"
20. apríl - 20. maí
Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. "Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?" Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.